Jafntefli hjá Margréti Láru í fyrsta leiknum

Margrét Lára Viðarsdóttir. stækka

Margrét Lára Viðarsdóttir. Carlos Brito/Algarvephotopress

Margrét Lára Viðarsdóttir lék í dag sinn fyrsta leik með þýska stórliðinu Turbine Potsdam þegar liðið mætti Hamburger SV á útvelli í þýsku 1. deildinni. Margrét lék síðasta hálftímann en liðin skildu jöfn, 1:1, og komu þau úrslit mjög á óvart enda skilja mörg stig liðin að.

Fram kemur á vef Potsdam að Margrét hafi fengið gott færi þegar um sjö mínútur voru til leiksloka en skot hennar fór framhjá markinu.

Turbine Potsdam er með 31 stig í efsta sæti deildarinnar en Duisburg er í öðru sæti með 26 stig. Hamburger SV er í 9. sætinu með 9 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is