Íþróttir
|
Fótbolti
| Morgunblaðið
| 22.2.2012
| 5:54
Sú besta verður með Japan á Algarve
Homare Sawa, sem var kjörin besta knattspyrnukona heims árið 2011, verður með japanska heimsmeistaraliðinu í Algarve-bikarnum í Portúgal sem hefst næsta miðvikudag.
Sawa hefur átt við meiðsli að stríða en hún er í hópnum sem tilkynntur hefur verið fyrir mótið.
Japanir taka þátt í Algarve-bikarnum í annað sinn. Þeir höfnuðu í þriðja sæti í fyrra, á eftir Bandaríkjunum og Íslandi, og lögðu Svía, 2:1, í úrslitaleik um þriðja sætið. Japanska liðið kom síðan skemmtilega á óvart um sumarið þegar það varð heimsmeistari í fyrsta skipti.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






