Hannes semur við Atyrau

Hannes Þ. Sigurðsson (t.h.) í leik. stækka

Hannes Þ. Sigurðsson (t.h.) í leik. mbl.is/ÞÖK

Knattspyrnumaðurinn Hannes Þ. Sigurðsson mun skrifa undir samning við Atyrau frá Kasakstan á morgun að undangenginni læknisskoðun. Hannes hefur verið við æfingar hjá liðinu í Tyrklandi undanfarna daga og í kjölfarið var honum boðinn samningur.

Eins og Morgunblaðið greindi frá á dögunum var Hannes við æfingar hjá Aktobe frá Kasakstan, sem var einnig í æfingabúðum í Tyrklandi. Honum var ekki boðinn samningur og kom heim en hélt nokkru síðar aftur til Tyrklands eftir að forráðamenn Atyrau settu sig í samband við hann.

Það þarf vart að taka það fram að Hannes verður fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn til að spila með liði frá Kasakstan en hann skráði nafn sitt í sögubækurnar í fyrra þegar hann varð fyrstur Íslendinga til að spila í rússnesku deildinni þegar hann gekk í raðir Spartak Nalchik.

Nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is