Íþróttir
|
Fótbolti
| Morgunblaðið
| 23.2.2012
| 10:10
Margrét Lára: Sátt með frumraunina
Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is
Margrét Lára Viðarsdóttir spilaði í gær sinn fyrsta leik með þýska efstu deildar félaginu Turbine Potsdam en það sótti þá Hamburger SV heim. Lokatölur voru 1:1 en Margrét kom inn á eftir klukkutíma og fékk tvö góð færi til að bæta við öðru marki fyrir Potsdam.
Langt er síðan eða um miðjan október, að opinberað var að Margrét færi frá sænska félaginu Kristianstad þar sem hún lék í tvö og hálft ár. Biðin eftir fyrsta leiknum hefur því verið löng.
„Þetta var ágæt tilfinning þrátt fyrir tvö töpuð stig. Engu að síður er mjög gott að vera komin af stað og búin að spila fyrsta leikinn. Ég get svo sem verið ánægð með það en auðvitað hefði ég viljað taka þrjú stig,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir.
Nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






