Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 23.2.2012
| 10:46
| Uppfært
14:49
Samið við Ungverja um landsleik
Samið hefur verið um að karlalandslið Íslands og Ungverjalands í knattspyrnu leiki vináttulandsleik á Laugardalsvellinum eftir rúmt ár, mánudaginn 3. júní 2013. Frá þessu er greint á vef KSÍ.
Leikurinn er hluti af samkomulagi knattspyrnusambanda landanna um leiki sem gert var á síðasta ári en þá sóttu Íslendingar Ungverja heim til Búdapest 10. ágúst í vináttulandsleik. Ungverjar unnu þá viðureign, 4:0.
Leikurinn verður liður í undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir heimaleik gegn Slóveníu í undankeppni HM sem fer fram á Laugardalsvellinum fjórum dögum síðar, 7. júní.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






