Byrjunarlið Þjóðverja tilbúið

Klara Bjartmarz, önnur frá vinstri, ásamt fulltrúum Japan, Svíþjóðar og Þýskalands á fréttamannafundi á Algarve ... stækka

Klara Bjartmarz, önnur frá vinstri, ásamt fulltrúum Japan, Svíþjóðar og Þýskalands á fréttamannafundi á Algarve fyrir mótið. mbl.is/Algarvephotopress

Evrópumeistarar Þjóðverja hafa tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Íslandi í Algarve-bikarnum í knattspyrnu í Portúgal sem hefst klukkan 14.00. Þar eru margar af fremstu knattspyrnukonum heims innanborðs.

Þar eru m.a. samherjar Margrétar Láru Viðarsdóttur hjá Potsdam, þær Babett Peter og Viola Odebrecht, og hin öfluga Anja Mittag sem nú er orðin samherji Þóru B. Helgadóttur og Söru Bjarkar Gunnarsdóttur hjá Malmö í Svíþjóð.

Odebrecht lék nokkra leiki með Val sumarið 2006 og sex núverandi íslenskar landsliðskonur léku þá við hlið hennar með Hlíðarendafélaginu.

Liðið er þannig skipað:

Almut Schult (Bad Neuenahr) - Linda Bresonik (Duisburg), Annike Krahn (Duisburg), Josephine Henning (Wolfsburg), Babett Peter (Potsdam) - Viola Odebrecht (Potsdam), Lena Goessling (Wolfsburg) - Anja Mittag (Malmö), Celia Okoyino da Mbabi (Bad Neuenahr), Melaine Behringer (Frankfurt) - Alexandra Popp (Duisburg).

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is