Byrjunarlið U21 árs landsliðsins
Eyjólfur Sverrisson þjálfari U21 árs landsliðs karla í knattspyrnu hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Aserbaídsjan í undankeppni Evrópumótsins en leikur þjóðanna hefst í Bakú klukkan 14 að íslenskum tíma.
Jóhannes Ólafsson formaður U21 árs landsliðsnefndar KSÍ sagði í samtali við mbl.is að það væri hugur leikmönnum íslenska liðsins og menn staðráðnir í að selja sig dýrt. Að sögn Jóhannesar er um 5 stiga hiti í Bakú.
Byrjunarliðið er þannig skipað:
Markvörður: Ásgeir Magnússon
Hægri bakvörður: Jóhann Laxdal
Miðvörður: Hólmar Örn Eyjólfsson (F)
Miðvörður: Finnur Orri Margeirsson
Vinstri bakvörður: Hörður B. Magnússon
Hægri kantmaður: Dofri Snorrason
Miðjumaður: Björn Daníel Sverrisson
Miðjumaður: Egill Jónsson
Vinstri kantmaður: Þórarinn Ingi Valdimarsson
Framherji: Jón Daði Böðvarsson
Framherji: Aron Jóhannsson
Varamenn: Arnar Darri Pétursson (M), Atli Sigurjónsson, Guðmundur Þórarinsson, Rúnar Már Sigurjónsson, Þorsteinn Már Ragnarsson, Brynjar Gauti Guðjónsson, Árni Snær Ólafsson.






