Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 29.2.2012
| 15:08
Japanir sigruðu Norðmenn
Japönsku heimsmeistaranir í knattspyrnu kvenna lögðu Norðmenn að velli, 2:1, í fyrsta leik Algarve-bikarsins í Portúgal sem fram fór í dag. Liðin leika í B-riðlinum en viðureign Íslands og Evrópumeistara Þýskalands stendur yfir í A-riðlinum.
Isabell Herlovsen kom norska liðinu yfir á 17. mínútu en Yuki Nagasato, samherji Margrétar Láru Viðarsdóttur hjá Turbine Potsdam, jafnaði fyrir Japani á 45. mínútu. Nagasato skoraði einmitt þrennu fyrir Potsdam gegn Þór/KA í fyrri leik liðanna í Meistaradeild kvenna á Þórsvellinum síðasta haust.
Það var svo Naomi Kawasumi sem skoraði sigurmark Japana á 66. mínútu.
Hin tvö liðin í B-riðli eru Bandaríkin og Danmörk og þau mætast á eftir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






