Ósigur í Aserbaídsjan

Dofri Snorrason og Þórarinn Ingi Valdimarsson leika hægra og vinstra megin á miðjunni hjá íslenska ... stækka

Dofri Snorrason og Þórarinn Ingi Valdimarsson leika hægra og vinstra megin á miðjunni hjá íslenska liðinu. mbl.is/Ómar

Aserbaídsjan sigraði Ísland, 1:0, í Evrópukeppni U21 árs landsliða í knattspyrnu í Bakú í Aserbaídsjan í dag og liðin höfðu þar með sætaskipti í riðlinum.

Ali Gokdemir skoraði sigurmarkið á 41. mínútu. Hörður Björgvin Magnússon var næstur því að jafna fyrir Ísland en hann átti skalla í þverslá á 75. mínútu.

England er með 12 stig, Belgía 8, Noregur 7, Aserbaídsjan 4 og Ísland 3 stig. Með þessum ósigri eru vonir íslenska liðsins um að blanda sér í baráttuna um annað sætið í riðlinum endanlega farnar í súginn. England og Belgía mætast í kvöld.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

90+4 Leik lokið með sigri heimamanna.

90. Aron Jóhannsson með skot í varnarmann heimaliðsins.

89. Seyidov með skot framhjá íslenska markinu.

85. Þórarinn Ingi Valdimarsson með skot framhjá marki heimamanna. Nú fer að styttast í þessu.

83. Ásgeir Magnússon í marki Íslands ver frá Isgandarov.

80. Björn Daníel Sverrisson með skot framhjá marki Asera.

78. Abasiyev með skot framhjá marki Íslands.

77. GULT - Jón Daði Böðvarsson fær gula spjaldið, fyrstur Íslendinga í leiknum.

75. Hörður Björgvin Magnússon með skalla í þverslá. Þarna munaði litlu.

73. Þorsteinn Már Ragnarsson, KR-ingurinn frá Ólafsvík, kemur inná og spilar sinn fyrsta landsleik. Jóhann Laxdal fer af velli. Sóknarmaður fyrir varnarmann.

73. Abdullayev með skot framhjá íslenska markinu.

69. Seyidov með skot framhjá marki Íslands.

68. Jón Daði Böðvarsson með skot í varnarmann og í horn.

66. Garayev með skot í íslenskan varnarmann.

65. Þórarinn Ingi Valdimarsson með skot en í varnarmann Asera.

61. Fyrsta skiptingin. Egill Jónsson fer af velli í sínum fyrsta landsleik í þessum aldursflokki. Guðmundur Þórarinsson kemur í hans stað.

60. Aghayev í marki Asera ver skot frá Jóni Daða Böðvarssyni.

59. Björn Daníel Sverrisson með skot í varnarmann heimaliðsins í vítateignum.

57. Aghayev í marki Asera ver skot frá Þórarni Inga Valdimarssyni.

55. Ásgeir Magnússon í marki Íslands ver skot frá Abdullayev.

54. Abdullayev með skot framhjá íslenska markinu.

52. Jón Daði Böðvarsson með skot að marki Asera en í varnarmann.

48. Hasanov með skot framhjá marki Íslands.

46. Seinni hálfleikur er hafinn á Dalga leikvanginum í Bakú.

45. HÁLFLEIKUR í Bakú og heimamenn eru með forystu, 1:0.

43. Seyidov með skot framhjá marki Íslands.

41. MARK - 1:0. Gokdemir kemur Aserum yfir með marki beint úr aukaspyrnu.

30. GULT - Fyrsta gula spjaldið fær Hasanov í liði heimamanna.

24. Hasanov með skot  framhjá marki Íslands.

21. Aghayev í marki Asera ver skot frá Jóni Daða Böðvarssyni. Besta færið hingað til.

20. Ísland hefur verið sterkari aðilinn til þessa í leiknum og sótt meira.

17. Guliyev með skot framhjá marki Íslands.

13. Aghayev í marki Asera ver skot frá Aroni Jóhannssyni.

13. Ásgeir Magnússon í marki Íslands ver skot frá Hasanov.

9. Jón Daði Böðvarsson með skot framhjá marki Asera.

8. Egill Jónsson með skot að marki sem Aghayev í marki Asera ver.

7. Þórarinn Ingi Valdimarsson með skot framhjá marki heimamanna.

6. Dofri Snorrason með skot framhjá marki heimamanna.

1. Leikurinn er hafinn í Bakú þar sem leikið er á Dalga Stadium, splunkunýjum 6.500 manna leikvangi í höfuðborginni.

Ísland er með 3 stig eftir fjóra leiki í keppninni en Aserbaídsjan er með eitt stig eftir fjóra leiki. England er með 12 stig í riðlinum, Belgía 8 og Noregur 7 en England og Belgía mætast í kvöld.

Lið Íslands: Ásgeir Magnússon - Jóhann Laxdal, Hólmar Örn Eyjólfsson fyrirliði, Finnur Orri Margeirsson, Hörður B. Magnússon - Dofri Snorrason, Björn Daníel Sverrisson, Egill Jónsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson - Jón Daði Böðvarsson, Aron Jóhannsson.

Varamenn: Arnar Darri Pétursson (M), Atli Sigurjónsson, Guðmundur Þórarinsson, Rúnar Már Sigurjónsson, Þorsteinn Már Ragnarsson, Brynjar Gauti Guðjónsson, Árni Snær Ólafsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is