Knattspyrnumaður á Ítalíu lést í leik

Ekki er langt síðan Fabrice Muamba hneig niður vegna hjartaáfalls …
Ekki er langt síðan Fabrice Muamba hneig niður vegna hjartaáfalls í leik með Bolton. AP

Fyrrverandi 21 árs landsliðsmaður Ítalíu og leikmaður Livorno, Piermario Morosini lést í dag eftir að hafa fengið hjartaáfall í leik liðsins gegn Pescara í ítölsku B-deildinni. AFP fréttastofan fullyrðir að maðurinn sé látinn en þetta gerðist á 31. mínútu og þá var staðan 2:0 Livorno í vil. Leikurinn var að sjálfsögðu flautaður af.

Ekki er langt síðan Fabrice Muamba fékk hjartaáfall í leik með Bolton gegn Tottenham í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Hann er nú á öruggum og góðum batavegi.

Morosini var á láni hjá Livorno frá A-deildarliðinu Udinese.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert