Egill Atlason, knattspyrnumaður sem hefur spilað með Víkingi Reykjavík undanfarin ár, er genginn til liðs við Leikni Reykjavík sem spilar í 1. deildinni. Þetta kemur fram á vef félagsins.
Egill er þrítugur að aldri og hefur leikið í stöðu miðvarðar hin síðari ár en hann hefur spilað með Víkingi frá árinu 2003 í efstu og næstefstu deild. Egill lék 18 leiki með Víkingum í 1. deildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim 2 mörk.
Leiknismenn rétt björguðu sér frá falli í 2. deild í sumar en á dögunum voru þeir Davíð Snorri Jónasson og Freyr Alexandersson ráðnir þjálfarar liðsins.