Andri Steinn semur við Víking R.

Andri Steinn (t.v.) er aftur orðinn Víkingur.
Andri Steinn (t.v.) er aftur orðinn Víkingur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Knattspyrnumaðurinn Andri Steinn Birgisson er genginn í raðir Víkings R. sem leikur í 1. deildinni en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið nú rétt í þessu.

Andri Steinn lék með Leikni R. í 1. deildinni í sumar en hætti hjá félaginu eftir tímabilið. Hann hefur á síðustu árum leikið með Fjölni, Keflavík, Grindavík og í Noregi.

Þetta er í annað skiptið sem hinn 29 ára gamli Andri Steinn gengur í raðir Víkinga en hann lék með liðinu þegar það komst upp úr 1. deildinni 2005.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert