Messi með tvö og er kominn í 88 mörk

Lionel Messi.
Lionel Messi. AFP

Argentínski fótboltasnillingurinn Lionel Messi heldur áfram að bæta metið í fjölda marka á einu ári.

Messi skoraði í kvöld bæði mörk Börsunga þegar þeir lögðu Cordoba, 2:0, á útivelli í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar.

Messi hefur þar með skorað 88 mörk á árinu 2012 en um síðustu helgi bætti Argentínumaðurinn 40 ára gamalt met Þjóðverjans Gerd Müller í fjölda marka á einu ári.

Sevilla er svo til öruggt áfram í átta liða úrslitin en liðið skellti Mallorca á útivelli, 5:0, þar sem Negredo skoraði tvö af mörkum þess.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert