Loic Ondo í BÍ/Bolungarvík

Loic Ondo í baráttunni í leik með Grindavík síðasta sumar.
Loic Ondo í baráttunni í leik með Grindavík síðasta sumar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Loic Mbang Ondo hefur gengið til liðs við BÍ/Bolungarvík og mun spila með liðinu í 1.deildinni næsta sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu BÍ/Bolungarvíkur í dag.

Ondo, sem er 23 ára varnarmaður frá Gabon, gekk í raðir Grindíkinga árið 2010 og lék með þeim í Pepsi-deildinni í fyrra. Sumarið 2011 var hann aftur á móti á láni hjá BÍ/Bolungarvík og þekkir því vel til þar.

Hann kemur til landsins þann 19. febrúar og mun þá hefja æfingar hjá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert