Selfyssingar bæta við sig Króata

Gunnar Guðmundsson er þjálfari Selfyssinga.
Gunnar Guðmundsson er þjálfari Selfyssinga. mbl.is

Króatíski knattspyrnumaðurinn Luka Jagacic er genginn til liðs við 1. deildarlið Selfyssinga og spilar með því í sumar en þetta kemur fram á Fótbolta.net.

Jagacic er 22 ára miðjumaður og hefur leikið með Gorica í B-deildinni og Varazdin í efstu deild í heimalandi sínu.

Áður höfðu Selfyssingar samið við spænsku leikmennina Juan Povedano og Javier Zurbano en nýr þjálfari þeirra, Gunnar Guðmundsson, er að setja saman nýtt lið þar sem flestir þeirra sem léku með Selfyssingum í úrvalsdeildinni í fyrra eru horfnir á braut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert