Dagný í hópi þeirra bestu

Dagný Brynjarsdóttir og Rúna Sif Stefánsdóttir úr Stjörnunni í baráttunni.
Dagný Brynjarsdóttir og Rúna Sif Stefánsdóttir úr Stjörnunni í baráttunni. mbl.is/Eva Björk

Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er í hópi 31 leikmanns sem samtök knattspyrnuþjálfara í Bandaríkjunum hafa tilnefnt í kjöri um besta leikmann bandaríska háskólaboltans.

Sigurvegari verður útnefndur 10. janúar og hlýtur Hermann-bikarinn. Dagný var önnur af tveimur leikmönnum Florida State háskólans sem voru tilnefndir en hún skoraði 9 mörk og lagði upp 9 á síðustu leiktíð. 

Dagný er uppalin hjá KFR en hún gekk í raðir Vals árið 2007 þar sem hún hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari. Mark hennar gegn Hollandi á EM í Svíþjóð í sumar skaut Íslandi upp úr riðlakeppninni í fyrsta skipti í sögunni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert