Trapattoni hættur

Giovanni Trappatoni.
Giovanni Trappatoni. AP

Ítalinn Giovanni Trapattoni er hættur sem landsliðsþjálfari Íra í knattspyrnu. Írar töpuðu fyrir Austurríkismönnum, 1:0, í undankeppni HM í gær og þar með er ljóst að Írar eiga ekki lengur möguleika á að komast í úrslitakeppni HM í Brasilíu á næsta ári.

Tilkynning um þetta barst frá írska knattspyrnusambandinu í morgun en hún var birt eftir fund Trapattoni með forráðamönnum írska knattspyrnusambandsins. Ítalinn hefur stýrt írska landsliðinu frá árinu 2008.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert