Miðasala á Króatía - Ísland

Íslensku leikmennirnir fagna marki Gylfa Sigurðssonar gegn Albönum í Tírana.
Íslensku leikmennirnir fagna marki Gylfa Sigurðssonar gegn Albönum í Tírana. EPA

KSÍ auglýsir á vef sínum miða til sölu á síðari viðureign Króatíu og Íslands í umspili um sæti á HM sem fram fer í Zagreb þann 19. nóvember.

KSÍ hefur fengið miða hjá króatíska knattspyrnusambandinu fyrir íslenska áhorfendur og kostar miðinn 5.500 krónur.  Panta þarf miða í síðasta lagi miðvikudaginn 6. nóvember að því er fram kemur á vef KSÍ.

Sendið tölvupóst á Ragnheiði Elíasdóttur (ragnheidur@ksi.is) með eftirfarandi upplýsingum:

  • Nafn (á greiðanda)
  • Kennitala
  • Heimilisfang (ef senda á miðana: Express ábyrgðarsending kostar 1.745 krónur)
  • Fjöldi miða
  • Kreditkortanúmer
  • Gildistími korts

Einnig er hægt að leggja inn á reikning: Kennitala: 700169-3679 - Reikningsnúmer: 101-26-700400 og sendið afrit af greiðslukvittun á: ragnheidur@ksi.is.

Miðar eru afhentir/sendir eftir 6. nóvember.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert