Sami Hyypia rekinn frá Leverkusen

Sami Hyypia var rekinn frá Leverkusen í dag.
Sami Hyypia var rekinn frá Leverkusen í dag. AFP

Sami Hyypia var í dag rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Bayer Leverkusen í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu. Liðið er í fjórða sæti deildarinnar en einungis einn sigur í síðustu tólf leikjum gerði útslagið.

Hinn fertugi Hyypia lék lengi með Liverpool og tók við Leverkusen fyrir þetta tímabil, en áður hafði hann stýrt liðinu ásamt Sascha Lewandowski sem tekur nú við liðinu.

Hyypia kom til Leverkusen sem leikmaður árið 2009 og kom inn í þjálfarateymi liðsins þegar hann lagði skóna á hilluna tveimur árum síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert