Barcelona í annað sætið

Lionel Messi með varnarmenn Athletic Bilbao á hælunum í leiknum …
Lionel Messi með varnarmenn Athletic Bilbao á hælunum í leiknum í kvöld. AFP

Barcelona komst í kvöld uppfyrir Real Madríd og í annað sæti spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu með því að sigra Athletic Bilbao, 2:1, á heimavelli sínum, Camp Nou.

Atlético Madríd, sem vann Elche í gær, 2:0, er með 85 stig á toppnum, Barcelona er með 81 stig og Real Madríd er með 79 stig og á leik til góða en fékk frí um páskana vegna undanúrslitanna í Meistaradeildinni. Athletic Bilbao er síðan í fjórða sæti með 62 stig.

Aritz Aduriz kom Bilbao yfir í byrjun síðari hálfleiks. Pedro jafnaði fyrir Barcelona 20 mínútum fyrir leikslok og Lionel Messi skoraði sigurmarkið þremur mínútum síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert