Ragnar í sigurliði Krasnodar

Ragnar Sigurðsson
Ragnar Sigurðsson mbl.is/Ómar

Ragnar Sigurðsson og félagar hans í Krasnodar unnu í dag Dinamo Moskvu, 2:1, á útivelli í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en leikið var í Moskvu. Heimamenn voru marki yfir í hálfleik.

Ragnar og félagar bitu frá sér í þeim síðari hálfleik. Þeir jöfnuðu metin á 73. mínútu og bættu við öðru marki sjö mínútum síðar en það reyndist vera sigurmarkið. 

Ragnar lék í vörn Krasnodar allan leikinn. Liðið er nú í sjötta sæti með 43 stig eftir 26 leiki. Dinamo Moskva er þremur stigum ofar í fjórða sæti. Zenit frá Pétursborg er efst með 56 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert