Enn óvíst hvort Ronaldo verði með gegn Bayern

Ronaldo á æfingu með Real Madrid.
Ronaldo á æfingu með Real Madrid. AFP

Carlo Ancelotti þjálfari Real Madrid segir að hann muni ekki taka ákvörðun um það hvort Cristiano Ronaldo spili á móti Bayern München annað kvöld fyrr en rétt fyrir leik.

Þessi tvö stórlið eigast við í fyrri leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Santiago Bernabeu í Madrid. Ronaldo hefur glímt við meiðsli og hefur ekki getað spilað síðustu fjóra leiki Real Madridar-liðsins.

„Cristiano hefur æft vel en við munum taka ákvörðun um það hvort hann spili á morgun. Hann spilar ef hann verður leikfær,“ sagði Ancelotti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert