„Góð úrslit að fara með til München“

Miðverðirnir Sergio Ramos og Pepe í baráttunni í kvöld.
Miðverðirnir Sergio Ramos og Pepe í baráttunni í kvöld. AFP

Sergio Ramos miðvörðurinn sterki í liði Real Madrid var ánægður með úrslitin í leiknum gegn Evrópumeisturum Bayern München í kvöld en Madridarliðið fagnaði 1:0 sigri.

„Þetta eru góð úrslit að fara með til München. Þetta var erfiður leikur og við þurftum að leggja hart að okkur í leiknum. Bayern er lið sem hefur leikmenn í ótrúlega hárum gæðaflokki og liðinu líkar vel að vera með boltann innan sinna raða.

En við vissum að við gætum skapað hættu með okkar skyndisóknum,“ sagði Ramos eftir leikinn en úr einni skyndisókn Real Madrid skoraði Karim Benzema sigurmarkið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert