Suárez verður númer 9

Luis Suárez alsæll í Barcelona búningnum.
Luis Suárez alsæll í Barcelona búningnum. Mynd/Barcelona.com

Komin er mynd af úrúgvæska framherjanum Luis Suárez á opinbera heimasíðu Barcelona, alsælum og glöðum í bláu og rauðu treyju Katalóníuliðsins.

Talið er að Suárez muni verða í treyju númer 9 hjá Barcelona en sá sem spilaði í henni á síðustu leiktíð fyrir Barcelona var Sílemaðurinn Alexis Sánchez en hann gekk á dögunum til liðs við bikarmeistara Arsenal á Englandi.

Barcelona virðist þó ekkert ætla að bíða með að láta nafn Suárez og númerið níu, aftan á treyju hans, enda salan á slíkum treyjum mikil um þessar mundir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert