Matthías skoraði tvívegis hjá Hannesi

Matthías Vilhjálmsson skoraði bæði mörk Start í dag.
Matthías Vilhjálmsson skoraði bæði mörk Start í dag. Ljósmynd/ikstart.no

Matthías Vilhjálmsson var hetja Start í dag þegar liðið lagði Sandnes Ulf í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, 2:1.

Matthías skoraði mörkin tvö á fyrsta stundarfjórðungi leiksins áður en Sandnes minnkaði muninn undir lokin, en í marki Sandnes stóð landi hans, Hannes Þór Halldórsson.

Guðmundur Kristjánsson var einnig í byrjunarliði Start og lék allan leikinn, en liðið er í níunda sætinu með 18 stig en Sandnes er í botnsætinu með 10 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert