Myndir af James Rodríguez á Bernabeu

Kólumbíski framherjinn James Rodríguez sem sló svo eftirminnilega í gegn með Kólumbíu á HM í knattspyrnu í Brasilíu fyrr í sumar var í gær kynntur til leiks sem nýjasti leikmaður spænska stórliðsins Real Madríd, sem kaupir hann frá Monaco.

Meðfylgjandi myndir eru frá því að James var kynntur á Santiago Bernabeu, heimavelli Real Madríd, í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert