Gylfi með tvö í fyrsta leiknum

Gylfi Þór Sigurðsson er byrjaður að skora á ný fyrir …
Gylfi Þór Sigurðsson er byrjaður að skora á ný fyrir Swansea. Ljósmynd/Tottenham

Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu fór vel af stað með Swansea City í dag þegar hann spilaði sinn fyrsta leik með félaginu eftir endurkomuna þangað.

Swansea sótti Plymouth Argyle heim í æfingaleik í dag og Gylfi skoraði tvívegis í 4:0 sigri velska liðsins. Hann gerði þriðja markið þegar 20 mínútur voru til leiksloka og fjórða markið í blálokin á leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert