Griezmann nánast kominn til Atlético

Antoine Griezmann er nánast genginn í raðir Atlético Madrídar.
Antoine Griezmann er nánast genginn í raðir Atlético Madrídar. AFP

Franski kantmaðurinn Antoine Griezmann verður líklega orðinn leikmaður spænska knattspyrnuliðsins Atlético Madríd áður en dagurinn verður á enda. Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Real Sociedad hafi samþykkt 30 milljón evra tilboð í Griezmann og hann hafi samið um kaup og kjör við Atlético.

Það séu því aðeins eftir formsatriði á borð við læknisskoðun áður en Griezmann verði kynntur sem nýr leikmaður Spánarmeistara Atlético Madríd.

Griezmann er 23 ára, hefur spilarð 179 deildarleiki fyrir Sociedad frá árinu 2009 og skorað 49 mörk. Þá á hann að baki 9 A-landsleiki fyrir Frakkland og hefur skorað í þeim 3 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert