Sigur í fyrsta leik hjá Gunnari

Gunnar Heiðar Þorvaldsson með treyju Häcken.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson með treyju Häcken. Ljósmynd/bkhacken.se

Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék í kvöld sinn fyrsta leik með Gautaborgarliðinu Häcken í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en það sigraði þá Djurgården á heimavelli, 2:1.

Öll mörkin voru skoruð á fyrsta hálftímanum en Gunnar kom inná sem varamaður á 57. mínútu. Hann samdi á dögunum við félagið til hálfs annars árs eftir að hafa fengið sig lausan undan samningi við Konyaspor í Tyrklandi.

Häcken er í þriðja sæti deildarinnar eftir 16 umferðir með 30 stig en Malmö er með 37 stig og AIK 31 í toppsætunum. Elfsborg, sem tekur á móti FH í 3. umferð Evrópudeildarinnar, er í fjórða sæti með 28 stig og vann Norrköping í gær, 3:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert