De Vrij til Lazio

Stefan de Vrij í leik með Hollendingum á HM. Hann …
Stefan de Vrij í leik með Hollendingum á HM. Hann hefur nú samið við Lazio á Ítalíu. AFP

Ítalska knattspyrnuliðið Lazio frá Rómarborg hefur fest kaup á hollenska landsliðsmanninum Stefan de Vrij frá Feyenoord. De Vrij er 22 ára gamall varnarmaður og vakti verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með hollenska landsliðinu í heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Brasilíu í sumar.

De Vrij hefur að undanförnu verið orðaður við lið á borð við Manchester United, en nú er ljóst að Lazio mun nýta sér krafta Hollendingsins á næstu leiktíð. Talið er að kaupverðið á De Vrij sé um 9 milljónir evra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert