Griezmann kominn til Atlético

Antoine Griezmann er genginn í raðir Atlético Madrídar.
Antoine Griezmann er genginn í raðir Atlético Madrídar. AFP

Franski landsliðsmaðurinn Antoine Griezmann gekk í dag formlega í raðir spænska meistaraliðsins Atlético Madrídar frá Real Sociedad. Griezmann er 23 ára framherji og Atlético greiðir 30 milljónir evra fyrir hann.

Griezmann er ætlað að hressa upp á sóknarleik Atlético Madrídar eftir að félagið seldi Diego Costa til Chelsa fyrr í sumar. Þó var Madrídarliðið einnig búið að fá króatíska framherjann Mario Mandzukic frá Bayern München í sumar.

Griezmann hef­ur spil­að 179 deild­ar­leiki fyr­ir Sociedad frá ár­inu 2009 og skorað 49 mörk. Þá á hann að baki 9 A-lands­leiki fyr­ir Frakk­land og hef­ur skorað í þeim 3 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert