Pellegrini: Hugmyndin um Lampard barst í tal

Manuel Pellegrini.
Manuel Pellegrini. AFP

Líkt og fram kom fyrr í kvöld mun Frank Lampard mögulega spila með Manchester City á láni í hálft ár frá New York City FC, áður en hann hefur leik með liðinu í bandarísku MLS deildinni í mars 2015. New York City FC er í 80% eigu City Football Group sem er dótturfyrirtæki Abu Dhabi United Group sem á Manchester City. Tengslin milli félaganna eru því augljóslega náin.

Manchester City er þessa dagana líkt og mörg önnur félög í æfingaferð í Bandaríkjunum en liðið spilaði meðal annars við Liverpool þriðjudagskvöld í New York.

„Það er erfitt að tala um þetta mál núna. Þessi hugmynd barst í tal. Hann [Lampard] mun koma og spila hér, en ég get ekki sagt neitt um það eins núna hver hugmyndin er nákvæmlega. Þetta kemur í ljós“ sagði Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City á blaðamannafundi í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert