Modric framlengdi til 2018

Luka Modric er með samning við Real Madríd til ársins …
Luka Modric er með samning við Real Madríd til ársins 2018. Ljósmynd/Real Madríd

Króatíski landsliðsmaðurinn Luka Modric framlengdi í dag við spænska knattspyrnuliðið Real Madríd til ársins 2018. Modric kom til liðs við Real Madríd árið 2012 frá Tottenham.

Modric er 28 ára og hefur á síðustu tveimur árum leikið 105 leiki fyrir Real Madríd og skorað 6 mörk. Hann á að baki 78 landsleiki fyrir Króatíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert