Naumt tap Ragnars og félaga

Ragnar Sigurðsson í baráttunni gegn Ral Sociedad í kvöld.
Ragnar Sigurðsson í baráttunni gegn Ral Sociedad í kvöld. AFP

Ragnar Sigurðsson og félagar hans í rússneska liðinu Kradnodar töpuðu í kvöld fyrir spænska liðinu Real Sociedad, 1:0, í fyrri leik liðanna í 4. umferð Evrópudeildarinnar í knattspyrnu.

Ragnar lék allan tímann í vörn Krasnodar en Alfreð Finnbogason var fjarri góðu gamni í liði Real Sociedad en hann er að jafna sig eftir að hafa farið úr axlarlið á dögunum. Sigurmark spænska liðsins skoraði Xabi Prieto á 71. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert