Ótrúlegt klúður í sigri Bayern - myndband

Thomas Müller skoraði fyrsta markið í þýsku deildinni í ár.
Thomas Müller skoraði fyrsta markið í þýsku deildinni í ár. AFP

Meistarar Bayern München byrja nýja leiktíð í Þýskalandi vel, en liðið lagði Wolfsburg að velli í upphafsleik deildarinnar nú í kvöld, 2:1.

Thomas Müller kom Bayern yfir, en þetta var í annað sinn sem hann skorar opnunarmark deildarinnar og sá fyrsti sem gerir það fyrir sama félagið, en það gerði hann einnig árið 2010.

Arjen Robben kom Bayern í 2:0 í upphafi síðari hálfleiks áður en Ivica Olic minnkaði muninn. Mörkin voru ekki fleiri, en Junior Malanda leikmaður Wolfsburg fær vart betri færi til að skora en hann fékk í síðari hálfleiknum þar sem hann gat jafnað metin.

Sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert