Alonso búinn að semja við Bayern

Xabi Alonso er kominn til Bayern München.
Xabi Alonso er kominn til Bayern München. Mynd/Twitter

Spænski miðjumaðurinn Xabi Alonso hefur skrifað undir tveggja ára saming við Þýskalandsmeistara Bayern München, en hann kemur til félagsins frá Real Madrid á Spáni.

Alonso var í fimm ár hjá Real eftir að hafa komið frá Liverpool og vann Meistaradeildina í vor. Hann skrifaði undir nýjan samning við félagið í janúar síðastliðnum, en félögin náðu samkomulagi um félagaskiptin í gær og eftir læknisskoðun í gærkvöldi skrifaði hann undir samning í morgun.

Alonso sagði á dögunum skilið við spænska landsliðið, en hann lék á sínum tíma 114 landsleiki og varð tvívegis Evrópumeistari og einu sinni heimsmeistari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert