Fyrrum leikmaður Barcelona samherji Emils

Javier Saviola er orðinn samherji Emils Hallfreðssonar.
Javier Saviola er orðinn samherji Emils Hallfreðssonar. AFP

Argentínski framherjinn Javier Saviola er genginn til liðs við ítalska félagið Hellas Verona sem Emil Hallfreðsson leikur með.

Saviola kemur frá Olympiakos frá Grikklandi, en hann er 32 ára gamall. Hann var á sínum tíma talinn einn efnilegasti framherji Evrópu þegar hann kom til Barcelona árið 2001, en hann fór þaðan til erkifjenda þeirra í Real Madrid árið 2007.

Saviola á að baki 40 landsleiki fyrir Argentínu og hefur þar skorað 11 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert