Anelka samdi við Mumbai á Indlandi

Nicolas Anelka.
Nicolas Anelka. AFP

Franski sóknarmaðurinnn Nicolas Anelka sem leystur undan samningi við enska úrvalsdeildarliðið WBA í mars er búinn að semja við indverska liðið Mumbai City FC.

Lið Mumbai leikur í hinni nýstofnuðu indversku úrvalsdeild og segist Anelka, sem er 35 ára gamall, spenntur fyrir því að spila með liðinu en hann hefur víða komið við á ferli sínum og hefur meðal annars leikið með Arsenal, Liverpool, Manchester City, Chelsea og Real Madrid.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert