Meistaradeildin í beinni - þriðjudagur

Cristiano Ronaldo og James Rodriguez hefja titilvörnina í Meistaradeildinni í …
Cristiano Ronaldo og James Rodriguez hefja titilvörnina í Meistaradeildinni í kvöld. AFP

Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu hefst í kvöld með átta leikjum. Fylgst verður með gangi mála í leikjunum í MEISTARADEILDIN Í BEINNI hér á mbl.is.

Real Madrid hefur titilvörnina á heimavelli gegn svissnesku meisturunum í Basel, Liverpool leikur sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni í fimm ár og í Þýskalandi er sannkallaður stórleikur þegar Dortmund tekur á móti Arsenal.

Leikir kvöldsins sem allir hefjast klukkan 18.45 eru:

Juventus - Malmö
Olympiacos - Atlético Madrid
Liverpool - Ludogorets
Real Madrid - Basel
Benfica - Zenit Pétursborg
Monaco - Leverkusen
Dortmund - Arsenal
Galatasaray - Anderlecht

Smellið á MEISTARADEILDIN Í BEINNI til að fara inn í beinu lýsinguna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert