Ronaldo með fjögur mörk

Cristiano Ronaldo fagnar einu af mörkum sínum í kvöld.
Cristiano Ronaldo fagnar einu af mörkum sínum í kvöld. AFP

Cristiano Ronaldo var heldur betur á skotskónum með Evrópumeisturum Real Madrid í kvöld þegar þeir burstuðu Elche, 5:1, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.

Gareth Bale skoraði fyrsta mark Real Madrid en þá tók við þáttur Ronaldo sem skoraði næstu fjögur mörk Madridarliðsins og komu tvö þeirra af vítapunktinum.

Ronaldo, sem skoraði þrennu í 8:2 sigri Real Madrid gegn Deportivo á laugardaginn, hefur þar með skorað 8 mörk í fyrstu fimm leikjum sinna manna í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert