„Liðsheildin mögnuð“

Edinson Cavani í baráttu við tvo leikmenn Barcelona í kvöld.
Edinson Cavani í baráttu við tvo leikmenn Barcelona í kvöld. AFP

Laurent Blanc þjálfari franska meistaraliðsins Paris SG var að vonum ánægður með sigur sinna manna gegn Barcelona, 3:2, í Meistaradeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Það kom ekki að sök fyrir Parísarliðið að leika án hins frábæra Zlatans Ibrahimovic því félagar hans áttu flottan leik og Paris SG hefur vel burði til að ná langt í Meistaradeildinni í ár.

„Ég er mjög ánægður. Þetta var frábær leikur en liðsheild okkar var mögnuð gegn þessu sterka liði Barcelona. Ég held að fyrir þá sem kunna að líka Paris SG og franskan fótbolta þá hafi þetta verið gott kvöld,“ sagði Blanc eftir leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert