Totti og Xavi settu met

Francesco Totti skorar hjá Joe Hart.
Francesco Totti skorar hjá Joe Hart. AFP

Francesco Totti, leikmaður Roma, og Xavi Hernandez, leikmaður Barcelona, skráðu nöfn sín í sögubækur Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld. Totti, sem er 38 ára gamall, skoraði jöfnunarmark Roma og varð þar með elsti markaskorari í Meistaradeildinni frá upphafi. Hann bætti met Walesverjans Ryans Giggs.

Xavi kom inn á sem varamaður í liði Barcelona gegn Paris SG og lék þar með sinn 143. leik í Meistaradeildinni. Svo marga leiki hefur enginn leikið í deildinni og bætti hann met Spánverjans Raúls.

Xavi er orðinn leikjahæstur.
Xavi er orðinn leikjahæstur. AFP
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert