Viðar Örn skoraði sitt 25. mark

Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson. Mynd/vif-fotball

Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson skoraði í kvöld sitt 25 mark í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Viðar Örn skoraði fyrra mark Vålerenga sem tapaði fyrir Rosenborg, 3:2, á útivelli eftir að hafa komist í 2:0 á fyrstu 20 mínútum leiksins.

Viðar Örn lék allan tímann fyrir Vålerenga og Hólmar Örn Eyjólfsson lék sömuleiðis allan tímann fyrir Rosenborg.

Vålerenga er með 39 stig í 6. sæti deildarinnar en Rosenborg er í þriðja sætinu með 51 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert