Landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason leikur sinn fyrsta leik sem byrjunarliðsmaður í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld þegar lið hans Real Sociedad tekur á móti Getafe.
Alfreð hefur komið við sögu í þremur leikjum Real Sociedad í deildinni á tímabilinu, alltaf sem varamaður, en hann meiddist í öxl rétt áður en keppni í deildinni hófst. Þá hafði hann leikið nokkra leiki í byrjunarliði í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Fyrir leikinn í kvöld er Real Sociedad í 16. sæti deildarinnar með aðeins 5 stig eftir 7 leiki en Getafe er með 7 stig í 14. sæti.