Real Sociedad fékk á sig tvö mörk í uppbótartíma

Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. Ljósmynd/heimasíða Real Sociedad

Real Sociedad tapaði í kvöld 1:2 á heimavelli fyrir Getafe í fyrsta leik Alfreðs Finnbogasonar í byrjunarliðinu í spænsku 1. deildinni.

Alfreð lék í fremstu víglínu hjá Sociedad og lék í 61 mínútu áður en honum var skipt af velli en Alfreð er smám saman að komast í leikform eftir meiðsli.

Pablo Hervías kom Sociedad yfir á 82. mínútur eftir sendingu frá Vela en tapið hlýtur að hafa verið súrt fyrir Alfreð og samherja hans því bæði mörk Getafe komu í uppbótartíma. Abdoul Yoda jafnaði á 90. mínútu eftir undirbúning frá Diawara og skoraði aftur eftir sendingu frá Sammir þegar fjórar mínútur voru liðnar af uppbótartíma. 

Real Sociedad hefur byrjað tímabilið illa og er í 16. sæti með aðeins einn sigur í fyrstu átta deildarleikjunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert