Aron Jóhannsson lék í gær sinn fyrsta leik síðan hann lék með bandaríska landsliðinu á HM í Brasilíu í sumar. Aron spilaði fyrir varalið AZ Alkmaar gegn Utrecht í Hollandi, og skoraði í 2:1-tapi, en hann er að jafna sig eftir meiðsli.
Aron er 23 ára gamall sem gekk í raðir AZ Alkmaar frá danska liðinu AGF árið 2013 en áður en hann hélt út í atvinnumennskuna spilaði hann með Fjölni í Grafarvogi.