Geta veðjað á það að Suárez bíti Ronaldo

Luis Suárez er að ljúka fjögurra mánaða banni sínu fyrir …
Luis Suárez er að ljúka fjögurra mánaða banni sínu fyrir að bíta andstæðing sinn, í þriðja sinn á ferlinum. AFP

Veðmálafyrirtækið Paddy Power hefur ákveðið að gera notendum sínum kleyft að veðja á það að Luis Suárez bíti einhvern af leikmönnum Real Madrid í fyrsta leik sínum með Barcelona, sjálfum El Clásico á morgun kl. 16.

Luis Enrique þjálfari Barcelona staðfesti það við fjölmiðla í dag að Suárez myndi spila í leiknum á morgun, sínum fyrsta eftir fjögurra mánaða bannið sem hann fékk fyrir að bíta Giorgio Chiellini á HM í Brasilíu í sumar.

Nú er hægt að veðja á það hvort Suárez endurtaki leikinn og bíti andstæðing sinn í fjórða sinn á ferlinum. Hægt er að veðja á það hvaða leikmann Suárez bíti og þykir varnarmaðurinn skapbráði Pepe líklegastur. Þá er hægt að veðja á það í hvaða líkamshluta Suárez bíti, hvenær hann bíti andstæðing sinn, og hvort hann bíti dómara eða jafnvel samherja.

Miðað við stuðlana sem gefnir eru telur Paddy Power ekki líklegt að Suárez sökkvi tönnunum í einhvern andstæðinga sinna á morgun, en hægt er að fá 80-falda upphæð tilbaka með því að tippa á að hann bíti Cristiano Ronaldo, svo dæmi sé tekið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert