Mikilvægur sigur hjá Sölva

Sölvi Geir Ottesen
Sölvi Geir Ottesen mbl.is/Eggert

Sölvi Geir Ottesen og samherjar hans í Ural náðu í dýrmæt stig í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar þeir sigruðu Arsenal Tula, 1:0, á heimavelli sínum í Jekaterinburg.

Aleksandr Erohin skoraði sigurmarkið á 38. mínútu og Sölvi lék að vanda allan tímann í vörn Úralfjallaliðsins.

Ural lyfti sér með sigrinum upp í 12. sæti deildarinnar með 10 stig eftir 11 leiki en Arsenal Tula situr eftir í 16. og síðasta sætinu með aðeins 2 stig. Tvö neðstu liðin falla beint og næstu tvö fara í umspil þannig að Ural er sloppið úr þeim sætum, allavega í bili, en liðið náði naumlega að forðast umspilið síðasta vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert