Pogba framlengdi til 2019

Paul Pogba í leik með Frökkum á HM.
Paul Pogba í leik með Frökkum á HM. AFP

Franski knattspyrnumaðurinn Paul Pogba hefur framlengt samning sinn við ítölsku meistarana Juventus til næstu fimm ára, eða til ársins 2019.

Pogba er 21 árs gamall og samningur hans átti að renna út sumarið 2016. Hann kom til Juventus frá Manchester United fyrir tveimur árum og þykir einn efnilegasti miðjumaður heims. Hann var í sumar valinn besti ungi leikmaður heimsmeistarakeppninnar í Brasilíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert