Elísabet sagði nei við karlalið í þremur löndum

Elísabet Gunnarsdóttir.
Elísabet Gunnarsdóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Ég held svei mér þá að þetta hafi verið besta tímabilið til þessa. Við settum okkur ýmis markmið og náðum þeim öllum, og ég get ekki annað en verið mjög ánægð,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari kvennaliðs Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sjötta tímabili hennar með liðið er nýlokið og Kristianstad hafnaði í 5. sæti auk þess að komast í bikarúrslitaleikinn þar sem liðið tapaði fyrir Linköping.

Elísabet samdi í vikunni til þriggja ára í viðbót við Kristianstad. Það var í raun aldrei spurning í hennar huga, ekki fyrr en að tilboð tóku að berast úr óvæntri átt.

„Ég var búin að ákveða að vera hérna áfram enda búin að vinna hörðum höndum hérna síðustu ár, og fá mikið af góðu fólki með mér í ýmis verkefni sem ég tel að munu án efa koma félaginu af alvöru á kortið innan 2-3 ára. Í miðjum þessum pælingum þá komu svolítið óvæntar spurningar inn á borð til mín, aðallega frá knattspyrnufélögum í karlaboltanum. Það var eitthvað sem ég átti ekkert von á en ég fann að það kviknaði mikill áhugi fyrir því. Ég ákvað að rannsaka þessa möguleika, ekki síst til að vita af þeim á seinni stigum, og þá er ágætt að hafa rætt við þessa aðila og vita hvað þeir séu að hugsa,“ sagði Elísabet.

Nánar er rætt við Elísabetu í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert